Hvaða munur er á góðri konu og slæmri konu?

Það er erfitt að finna þann mann sem ekki hefur yfir einhverju að kvarta yfir konunni sinni. En af hverju er svona mikið af slæmum konum til? Svarið við því er mjög flókið þannig að við skulum breyta aðeins spurningunni. Af hverju er svona lítið til af góðum konum? Og af hverju er svona erfitt að finna menn sem tala vel um konurnar sínar?

Í morgunkaffinu í ónefndri bankastofnun: "Vitiði hvað konan mín gerði fyrir mig í gær? Þegar ég kom heim úr vinnunni þá hafði hafði þessi elska þvegið fötin af okkur og straujað skyrturnar mínar, og vitiði hvað? Ekki nóg með það heldur bauðst hún til að elda matinn á meðan ég hjálpaði krökkunum með heimanámið! Þegar krakkarnir voru sofnaðir þá hellti hún upp á gott kaffi fyrir okkur og við laumuðumst í jólakonfektið. Þið hefðuð átt að sjá hvað hún ljómaði þegar ég nuddaði tásurnar hennar yfir tíufréttunum."

Svarið við spurningunni er í raun sáraeinfalt. "Slæma" konan á tillitslausan mann sem gengur að öllu sem sjálfsögðum hlut. "Góða" konan á tillitssaman og hjálpfúsan mann sem veit að ekkert gerist af sjálfu sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Viðarsdóttir

Ég held að stundum þyrfti fólk að vera áhorfandi að eigin sambandi/sambúð. Svona eins og draugur sem svifi yfir hjónum/pari þegar að það er heima við dagleg störf. Ég held að báðir aðilar sæu ýmislegt sem það gerði sér ekki grein fyrir. Það er nefnilega svo auðvelt að vera gagnrýninn á hinn aðilann og sjá ekki í eigin barm.

Anna Viðarsdóttir, 30.11.2007 kl. 12:11

2 Smámynd: Björgvin Kristinsson

Ertu sem sagt að segja að það gerist ekkert af sjalfu ser?

Björgvin Kristinsson, 2.12.2007 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Kristinsson

Höfundur

Þorsteinn Kristinsson
Þorsteinn Kristinsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Fylgni heimsmarkaðsverðs og verð á dælu

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband