Hjarðkeppni - of margar bensínstöðvar?

Ég heyrði nýtt orð yfir aukna álagningu olíufélaganna en það er hjarðhegðun þegar allir elta hina í álagningu. Þ.e.a.s. þegar einn hækkar hækka allir hinir líka en ef einn lækkar þá bíða hinir eftir því að hann hækki aftur, o.s.frv. Ég held að það væri betra að kalla hjarðhegðun samkeppnisaðila, hjarðkeppni.

En ég held að ástæðan fyrir aukinni álagningu olíufélaganna sé ekki endilega þeim sjálfum að kenna. Ef ég ætla að taka eldsneyti og er til í að keyra ca. 5 km á næstu bensínstöð, þá get ég valið úr (ekki tæmandi listi):

1. Olís - Hamraborg, 
2. N1 - Engihjalla,
3. Orkunni - Smiðjuvegi,
4. Egó - Staldrinu,
5. Olís - Mjódd,
6. Shell - Breiðholsbraut,
7. Orkunni - Dalvegi,
8. Ób - Bæjarlind,
9. Egó - Smáralind (austanmegin),
10. Egó - Smáralind (vestanmegin),
11. Shell - Smáralind,
12. Atlantsolíu - Bústaðavegi,
13. N1 - Fossvogi, 
14. Atlantsolíu - Kársnesbraut

Hvað kostar að reka allar þessar 14 bensínstöðvar! Ég bara spyr! Ég þarf bara eina, þegar bensínljósið kviknar ég get keyrt 50 km áður en ég tek eldsneyti. Finnst einhverjum skrítið hvað álagningin er há þegar fjöldi bensínstöðva er skoðaður?  Er einhver svo vitlaus að halda að það sé selt meira eldsneyti þegar það eru fleiri bensínstöðvar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Áslaug Kristinsdóttir

Þetta er alveg rétt hjá þér, þetta eru alltof margar bensínstöðvar á litlu svæði. En, afhverju gleymdirðu N1 í Skógarseli?

Áslaug Kristinsdóttir, 9.8.2008 kl. 13:46

2 Smámynd: Anna Viðarsdóttir

Ég vil bara eina ríkisrekna bensínstöð...

Kveðja,

Marteinn Mosdal

Anna Viðarsdóttir, 9.8.2008 kl. 19:59

3 Smámynd: Björgvin Kristinsson

Það veitir ekkert af þessum stöðvum. Vitiði hvað ég hef oft rétt sloppið upp að bensíndælunni með kannski dautt á þremur!!!

Björgvin Kristinsson, 11.8.2008 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorsteinn Kristinsson

Höfundur

Þorsteinn Kristinsson
Þorsteinn Kristinsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Fylgni heimsmarkaðsverðs og verð á dælu

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1041

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband